Blogsíða Keflavíkur - Knattspyrna 30+

26.08.2010 01:20:58 / keflavik_eldri

Næsti leikur: Keflavík - ÍR

UPPFÆRT MÁNUDAGINN 30. ÁGÚST KL. 10:00:
LEIKURINN VERÐUR Á IÐAVÖLLUM 7.
DÓMARI: Ægir Magnússon
Það er leikur hjá 3. flokk á undan okkar leik, kl. 18:30, á Iðavöllum. Mæting kl. 19:31.

EFTIRTALDIR HAF BOÐAÐ KOMU SÍNA Í ÍR - LEIKINN ( 12 ):
Jói Magg, Krissi Geirs, Jakob Már, Raggi Steinars (líklega), Jói Steinars, Gummi Þór, Garðar Már, Gunni Odds, Óli P, Haukur, Zoran (líklega), Jón Ingi.

EFTIRTALDIR KOMAST EKKI Í ÍR - LEIKINN (6):
Óli Gylfa, Gunnar MJ, Ingvar Georgs, Simmi, Goggi, Kiddi. 

EKKERT HEFUR HEYRST FRÁ ÞESSUM !!!!! ( 2 ):
Kalli, Maddi.

Þeir sem ekki hafa látið vita, látið heyra frá ykkur eins fljótt og auðið er.

Það verður enginn leikur á fimmtudaginn. Carl bað um frestun og Reynismenn komast ekki, þeir eru enn að jafna sig eftir 24 - 4 tapið gegn Blikum á þriðjudaginn !
Næsti leikur verður því GEGN ÍR !!!!!!  Liðið sem við töpuðum gegn í fyrra en unnum samt og urðum Íslandsmeistarar !!!  ÍR-ingar eru með mjög sterkt lið í ár og ætla sér sigur í mótinu. Þeir eru búnir að spila 5 leiki og hafa unnið þá alla. Þeir spiluðu reyndar gegn Carl í s.l. viku en úrslit úr þeim leik eru ekki komin inn á ksi.is En ég frétti að þar hafi mikið gengið á og slagsmál m.a. brotist út!!!
Leikur okkar gegn ÍR verður mánudaginn 30. ágúst kl. 20:00, væntanlega í Reykjaneshöll. Látið vita hér á blogginu eigi síðar en kl. 20:00 á sunnudag hvort þið komist að keppa, nú þurfum við á okkar allra sterkasta liði að halda.
Æfing á fimmtudag kl. 20:30 í Reykjaneshöll, hverjir ætla að mæta. Ef það verður æfing (veltur á hve margir ætla að mæta) þá þarf að fá starfsmenn Reykjaneshallar til þess að hafa opið fyrir okkur.

» 24 hafa sagt sína skoðun

24.08.2010 09:53:16 / keflavik_eldri

Næsti leikur: Carl - Keflavík

UPPFÆRT FIMMTUDAGINN 26. ÁGÚST, KL. 01:11:
Sjá færslu að ofan.....

UPPFÆRT MIÐVIKUDAG 25. ÁGÚST, KL. 16:24:
Enginn leikur gegn Carl, nýr leiktími fundinn síðar.
Reynismenn geta ekki spilað gegn okkur á fimmtudag.
Æfing kl. 20:30 á fimmtudag, hvar vilja menn vera??  Iðavellir eða Reykjaneshöll?



UPPFÆRT ÞRIÐJUDAGINN 24. ÁGÚST, KL. 22:44:
Lið Carls hefur óskað eftir "frestun" á leiknum, þeir óska reyndar eftir því að spila leikinn á miðvikudag (25. ágúst). Þeir gefa enga skýringu á ósk sinni, fékk meil frá þeim og svaraði til baka að það kæmi ekki til greina af okkar hálfu, fyrirvari væri allt of lítill. Ég er s.s. að bíða eftir frekari svari frá þeim, grunar að þeir nái ekki í nægjanlega "sterkt" lið á fimmtudag?? 
Ef af leiknum verður ekki á fimmtudag þá er spurning að reyna að fá Sangerðinga til að spila frestaða leikinn okkar á fimmtudag. Þessi mál ættu að skýrast á miðvikudag, fylgist með á blogginu.
Hvað viljið þið gera ??

Leikurinn gegn FH fór á besta veg, ljómandi góð frammistaða en sigur vannst 12 - 5 :)
Þið sem voruð að spila megið endilega skoða
leikskýrsluna og koma með leiðréttingar varðandi markaskorara, heimildir þær sem fengust eru víst ekki mjög áreiðanlegar, eða hvað???

Næsti leikur er gegn sterku liði Carls. Carl mætir án nokkurs vafa mjög sterkt til leiks en þeir ætluðu sér titilinn í fyrra en urðu að lúta í grasi fyrir okkur.  Það er því gríðarlega mikilvægt hjá okkur að tefla fram okkar allra sterkasta liði.
Leikurinn fer fram á Fylkisvelli n.k. fimmtudag kl. 20:00, væntanlega gervigras.
Mæting á Fylkisvöll eigi síðar en kl. 19:31.

Vinsamlegast látið vita hér á blogginu eigi síðar en kl. 20:00 á miðvikudag hvort þið komist eður ei. Verið duglegir að ýta á hvorn annan með að láta vita. Fátt er leiðinlegra og tímafrekara en að vera stöðugt að reyna að ná sambandi við fullorðna menn varðandi mætingu !!!

Í einhverjum tilvikum er erfitt að segja til um hvort maður komist að keppa, þá er best að láta vita af því.
Dæmi:
"Búinn að sjá færsluna, veit ekki hvort ég kemst en er líklegur/ólíklegur"

Gott í bili
Kv. Gunnar MJ

ÁFRAM KEFLAVÍK !!!!

» 17 hafa sagt sína skoðun

19.08.2010 00:24:04 / keflavik_eldri

Næsti leikur: FH - Keflavík

Næsti leikur er gegn FH, mánudaginn 23. ágúst kl. 20:00, mæting kl. 19:33.  Leikið verður á Kaplakrikavelli.
Vinsamlegast látið vita hér á blogginu, ekki seinna en kl. 19:00 á sunnudag, hvort þið komist að keppa eður ei. 
Vinsamlegast VIRÐIÐ þessi tímamörk.

» 6 hafa sagt sína skoðun

13.06.2010 23:23:21 / keflavik_eldri

Næsti leikur: Keflavík - Reynir S.

UPPFÆRT ÞRIÐJUDAGINN 15. JÚNÍ KL. 1:03:
Sandgerðingar hringdu í kvöld og óskuðu eftir frestun á leiknum, þar sem einhverjir leikmanna þeirra eru einnig að spila í utandeildinni á þriðjudag.  Þar sem um góða granna er að ræða og þeir höfðu samband degi fyrir leik þá varð ég við þeirra ósk. Ekki er búið að finna nýjan leikdag.
Næsti leikur er gegn Reyni S., þriðjudaginn 15. júní kl. 20:00, mæting kl. 19:33.  Þetta er síðasti leikur fyrir frí, næsti leikur verður svo mánudaginn 23. ágúst. 
Ekki er ljóst á hvaða velli við leikum gegn Reyni en ég læt vita hér á blogginu um leið og það verður ljóst.
Vinsamlegast látið vita hér á blogginu, ekki seinna en kl. 23:00 á mánudag, hvort þið komist að keppa eður ei. 
Vinsamlegast VIRÐIÐ þessi tímamörk. Það gekk ágætlega síðast að virða tímamörkin en þó má gera betur :-)

» 20 hafa sagt sína skoðun

09.06.2010 02:31:29 / keflavik_eldri

Næsti leikur: Njarðvík - Keflavík

UPPFÆRT FIMMTUDAGINN 10. JÚNÍ KL. 9:40:
Eftirtaldir hafa boðað komu sína í leikinn (9):
Krissi, Simmi, Gunni Odds, Raggi St, Maddi, Gummi Þór, Jón Ingi, Karl F, Gunnar MJ (stefnir á að mæta en verður þá í seinna lagi).

Eftirtaldir komast ekki:
Garðar Már, Óli P, Jói St, Óli Gylfa, Jói Magg, Jakob Már, Kiddi Guð, Haukur, Ingvar.

Í þessum hefur ekkert heyrst:
Goggi, Ívar, Zoran ???
Næsti leikur er gegn Njarðvík, fimmtudaginn 10. júní kl. 20:00, mæting kl. 19:33.  Leikið verðu á Njarðvíkurvelli.
Vinsamlegast látið vita hér á blogginu, ekki seinna en kl. 23:00 á miðvikudag, hvort þið komist að keppa eður ei. 
Vinsamlegast VIRÐIÐ þessi tímamörk.

» 16 hafa sagt sína skoðun

28.05.2010 12:44:40 / keflavik_eldri

Næsti leikur: Keflavík - Víkingur

UPPFÆRT ÞRIÐJUDAGINN 1. JÚNÍ KL. 13:07:

LEIK AFLÝST - VÍKINGUR NÆR EKKI Í LIÐ OG GEFUR LEIKINN !!!
BALLIРBYRJAР:(
Það verður spilað á IÐAVÖLLUM 7.

Eftirtaldir hafa boðað komu sína í leikinn (9):
Jón Ingi, Jói Magg, Jakob Már, Simmi, Maddi, Krissi, Óli Gylfa, Garðar Már, Kalli F.

Eftirtaldir komast EKKI (7):
Óli P, Jói Steinars, Gummi Þór, Zoran, Haukur, Raggi Steinars, Ingvar Georgs.

Í þessum hefur ekkert heyrst (4):
Kiddi Guð, Gunni Odds, Goggi, Ívar.

Næsti leikur er gegn Víking, ÞRIÐJUDAGINN 1. JÚNÍ kl. 20:00, mæting kl. 19:33.  Leikið verður á gamla Iðavallarsvæðinu, mæting í búningaaðstöðu að Iðavöllum 7.
Vinsamlegast látið vita hér á blogginu, ekki seinna en kl. 19:00 á mánudag, hvort þið komist að keppa eður ei. Vinsamlegast VIRÐIÐ þessi tímamörk.

» 15 hafa sagt sína skoðun

25.05.2010 13:46:24 / keflavik_eldri

FYLKIR - KEFLAVÍK

UPPFÆRT MIÐVIKUDAGINN 26. MAÍ KL. 14:20:

Það er staðfest að Fylkismenn mæta í leikinn:)

Eftirtaldir hafa boðað komu sína í leikinn (11) :
Simmi, Jói Magg, Óli Gylfa, Garðar Már, Jakob Már (vantar far), Kiddi Guð (hugsanlega), Goggi, Jón Ingi, Óli P, Ingvar Georgs, Gummi Þór

Eftirtaldir komast EKKI:
Krissi Geirs, Jói Steinars, Gunnar MJ, Maddi, Gunni Odds, Zoran, Hjörtur Harðar, Raggi Steinars, Haukur.

Í þessum hefur EKKERT heyrst ????:
Ívar, Kalli Finnboga

Væri gott ef þið sem sjáið þetta ýtið í þá sem ekki hafa látið vita

Fyrsti leikur tímabilsins verður gegn Fylki á Fylkisvelli miðvikudaginn 26. maí kl. 20:00. Líklegt er að spilað verði á gervigrasi. Mæting er kl. 19:30. Vinsamlegast látið vita hér á blogginu ekki seinna en kl. 12:00 á miðvikudag, hvort þið komist í leikinn eður ei? 
Veðurspá er BONGÓBLÍÐA og verður ekkert nema gaman að takast á við Árbæjarpiltana í sumarblíðunn :)
Áfram Keflavík !!



» 13 hafa sagt sína skoðun

20.10.2009 09:00:30 / keflavik_eldri

ÍR kærir úrslitaleikinn !!

Það er líf og fjör í eldri boltanum. ÍR hefur kært úrslit leiksins, sem voru þó þeim í hag!!!  Þeir óska eftir því að þeim verði dæmdur 3 - 0 sigu. Þeir byggja kæru sína á eftirfarandi reglugerð:

3. gr.
Fjöldi leikmanna
Hvort lið skal eigi skipað fleiri en sjö leikmönnum og skal einn vera markmaður. Skiptimenn skulu eigi vera fleiri en fimm.

Við vorum með 6 varamenn og teljumst því vera með ólöglega skipað lið.  Við viðurkennum þessi mistök á okkur, vissum því miður ekki betur.

En við munum senda inn kæru á þá til baka og óska eftir að úrslit leiksins verði okkur í hag 3 - 0. Af 11 leikmönnum ÍR sem léku umræddan leik voru AÐEINS 5 leikmenn ólöglegir:
Ásbjörn Jónsson, Álftanes (spilaði m.a. 3 leiki með Álftanesi í 3. deildinni sumarið 2009) />
Geir Brynjólfsson, Léttir (spilaði m.a. 1 leik með Létti í 3. deildinni sumarið 2009) />

Sturla Ómarsson, Léttir />

Geir Rúnar Birgisson, Afturelding />

Jón Þór Eyjólfsson, Hvíti Riddarinn


Það er hreint með ólíkindum að þeir leggi í að kæra okkur vitandi að þeir voru með 5 ólöglega leikmenn!!  En svona er víst boltinn......
Það er spurning hvort við eigum að óska eftir því að leikurinn verði leikinn að nýju þar sem báðir aðilar teljast brotlegir?

» 9 hafa sagt sína skoðun

15.10.2009 11:58:26 / keflavik_eldri

ÍSLANDSMEISTARAR 2009

http://keflavik.is/resources/Images/36368_Hopmynd2_Isl_Meist_2009.jpg

Hann endaði ekki nógu vel leikurinn gegn ÍR en við hömpuðum þó titlinum þriðja árið í röð, "súrsætt": En reglur eru reglur og eftir þeim skal farið. ÍR var einnig með a.m.k. tvo ólöglega leikmenn í sínu liði (þið vitið kannksi um fleiri?);
Jón Þór Eyjólfsson (Hvíti Riddarinn) og Geir Brynjólfsson (Léttir).
Takk fyrir tímabilið drengir.
Nú er spurning hvort menn vilji ekki hittast og hafa smá "lokahóf"? Hvað segið þið um það?
 

frétt um úrslitaleik á fotbolti.net
frétt um úrslitaleik á keflavik.is


» 4 hafa sagt sína skoðun

12.10.2009 09:01:41 / keflavik_eldri

Næsti leikur: ÍR - Keflavík

Þá er komið að lokaleiknum á Íslandsmótinu í ár.  Carl er ekki búið að leggja inn kæru v/leiktímans í leiknum gegn okkur. Þeir hafa fram að miðnætti aðfaranótt miðvikudags til þess að leggja inn kæru. Þannig að KSÍ hefur sett úrslitaleikinn á gegn ÍR miðvikudaginn 14. okt. kl. 18:30 í Egilshöll.  Við tökum þetta með trompi, mætum stundvíslega kl. 18:00 og tökum helvítis dolluna þriðja árið í röð.  Látið vita hér á blogginu eigi síðar en kl. 22:22 á þriðjudag hvort þið komist að keppa eður ei.
ÁFRAM KEFLAVÍK ;)


» 14 hafa sagt sína skoðun

09.10.2009 00:52:37 / keflavik_eldri

Orðnir Íslandsmeistarar ???

Það gerist ýmislegt furðulegt í knattspyrnuheiminum. Jóhann Steinarsson hefur rýnt vel í lagabálk KSÍ og þar fann hann eftirfarandi lagabút:

39.gr. 
Ekki mætt til keppni
 
39.1. Lið, sem ekki mætir til leiks og hefur engar gildar ástæður, telst hafa tapað leiknum 0-3.
Viðkomandi lið getur ekki orðið sigurvegari í yfirstandandi móti eða riðli, getur ekki flust í
næstu deild eða riðil fyrir ofan næsta keppnistímabil og getur ekki varist falli, þurfi
markamismunur að skera úr um röð neðstu liða. Viðkomandi leikur getur heldur ekki ráðið
úrslitum er grípa þarf til markamismunar við ákvörðun sætis hjá sigurvegaranum og skulu
mörk í leikjum gegn því félagi, sem mætti ekki til leiks, ekki teljast með í slíkum tilfellum.
Mótanefnd skal haga niðurröðun í næsta móti þannig, að lið sem ekki hefur mætt til leiks án
gildra ástæðna, fái ekki leik á heimavelli gegn viðkomandi liði.
39.2. Liði, sem ekki mætir til keppni tvo leikdaga í móti, skal vísað úr mótinu.
39.3. Liði, sem mætir til leiks með færri en 9 leikmenn, er ekki heimilt að hefja leikinn og telst ekki
hafa mætt til hans.


Þar sem ÍR mætti ekki til leiks gegn Keflavík þ. 20. maí og gaf leikinn getur ÍR - liðið EKKI orðið Íslandsmeistari !!  Er Keflavík þá orðið Íslandmeistari eða þurfum við að spila gegn Víking sem tapaði í undanúrslitum gegn ÍR??  Eða er annar möguleiki í stöðunni......????
Liðsmenn Carls hafa sent inn kvörtun (veit ekki hvort þeir séu búnir að kæra?) varðandi leiktíman í leiknum á þriðjudag.  Leiktíminn var 2 x 35 mín. en leiktíminn átti að vera 2 x 30 mín.  Þeir komust í 2 - 1 á 33 mín. fyrri hálfleiks, við jöfnuðum leikinn 4 - 4 á 36 mín. seinni hálfleiks.
Beðið er eftir svörun frá KSÍ varðandi þetta mál...?! Hvað segið þið....????

Würth Iceland – football&fun
Helgina 13. til 14. nóvember verður alþjóðlegt knattspyrnumót, haldið í þriðja skiptið í Egilshöll á vegum fyrirtækisins Würth á Íslandi, Knattspyrnuráðs Reykjavíkur og eldri flokks Fylkis. Á mótinu er keppt í þremur flokkum; karlar 35 ára og eldri, karlar 45 ára og eldri (nýr flokkur) og konur 28 ára og eldri.

Nánari upplýsingar um mótið má finna HÉR.

Þátttökugjald er aðeins 6 þúsund krónur á hvern leikmann, en innifalið í því er aðgangur í móttöku á föstudagskvöld, þátttaka í knattspyrnumótinu og aðgangur í lokahófið á laugardagskvöldinu. 

Er einhver áhugi hjá okkur Keflvíkingum að taka þátt í þessu móti?  Látið vita hér á blogginu hvort þið hafið áhuga eður ei.  Það þarf að senda inn skráningu sem fyrst, helst í gær.  Það er komin mjög góð þátttaka í mótið eins og sjá má hér að neðan.

Eftirtalin lið hafa nú þegar skráð sig til leiks:
Karlar 35 ára +
Breiðablik 1
Breiðablik 2
Fylkir
Grindavík
HK
IFC Carl
ÍR
KR Group
KS Siglufirði
Selfoss
ÍA/Teddi og veðurfræðingarnir
Travel&Play
UBHvolsvöllur
Víðir Garði
Víkingur
Würth
Þróttur 1
Þróttur 2
Ægir Þorlákshöfn
 
Karlar 45 ára +
Borgarstjórn Reykjavíkur
Breiðablik
Fylkir 1
Fylkir 2
Grótta
Stöngin Inn
Þróttur
 
Konur 28 ára +
Afturelding
Classic Crush
Fylkir
ÍA
ÍR drottningar
Stjarnan
Valur


» 3 hafa sagt sína skoðun

03.10.2009 01:26:10 / keflavik_eldri

Næsti leikur: Keflavík - Carl

Þá er komið að úrslitakeppninni - Undanúrslit 
Við skulum ætla það að andstæðingurinn mæti í þetta sinn!!
Næsti leikur er s.s. gegn Carl á þriðjudaginn (6. okt) í Reykjaneshöllinni kl. 20:00, mæting kl. 19:33. 
Vinsamlegast látið vita hér á blogginu, ekki seinna en kl. 12:34 á mánudag, hvort þið komist að keppa eður ei.
Það má búast við hörkuleik en lið Carls er skipað mörgum gömlum kempum, þó ekki jafn öflugum kempum og við höfum á að skipa :)

» 14 hafa sagt sína skoðun

29.09.2009 00:34:51 / keflavik_eldri

Næsti leikur: Keflavík - Þróttur

UPPFÆRT MIÐVIKUD. 30. SEPT. KL. 19:48:
Það verður enginn leikur gegn Þrótti !! Kemur á óvart ?! Þeir hafa tilkynnt að þeir mæti ekki til leiks !! 
Það styttist í úrslitakeppnina og má búast við hörkuleikjum þar gegn liðum sem eru í góðu standi.
Það er því við hæfi að mæta á æfingu í Reykjaneshöll á fimmtudag kl. 20.
Næsti leikur er gegn Þrótti á fimmtudaginn (1. okt) í Reykjaneshöllinni kl. 20:00, mæting kl. 19:33. 

Vinsamlegast látið vita hér á blogginu, ekki seinna en kl. 12:34 á miðvikudag, hvort þið komist að keppa eður ei.

» 13 hafa sagt sína skoðun

21.09.2009 11:15:42 / keflavik_eldri

Næsti leikur: Víkingur R. - Keflavík

UPPFÆRT FIMMTUD. 24. SEPT. KL. 14:04:
Eftirtaldir hafa boðað komu sína í leikinn í kvöld:
Simmi, Óli P, Jói St, Raggi St, Kiddi, Kobbi, Óli Gylfa, Haukur, Kalli F. og Krissi (10).
Eftirtaldir hafa boðað forföll:
Garðar, Gunnar MJ og Zoran
Ekkert hefur heyrst frá eftirtöldum:
Goggi ?
 
Næsti leikur er gegn Víking á fimmtudaginn (24. sept) í Víkinni.  Leikið verður á gervigrasi í flóðljósum og hefst leikurinn kl. 20:00, mæting kl. 19:33. 
Vinsamlegast látið vita hér á blogginu, ekki seinna en kl. 12:34 á miðvikudag, hvort þið komist að keppa eður ei.


» 13 hafa sagt sína skoðun

31.08.2009 00:45:21 / keflavik_eldri

Næsti leikur: Keflavík - Breiðablik

UPPFÆRT MÁNUDAGINN 31. ÁGÚST KL. 12:38:
Breiðablik hefur dregið lið sitt úr keppni og verður þ.a.l. enginn leikur. 
Leikir sem eftir eru:
Fim. 24. sept. Víkingur R. - Keflavík
Fim. 1. okt. Keflavík - Þróttur
Úrslitakeppni (sem við ætlum að sjálfsögðu að taka þátt í ):
Þri. 6. okt. Undanúrslit
Þri. 13. okt. Úrslitaleikur

Næsti leikur í Íslandsmótinu verður fimmtudaginn 3. september kl. 20:00 gegn Breiðablik. Leikið verður í Keflavík og er mæting kl. 19:33.  Það er reyndar spurning um birtuskilyrði, er enn bjart kl. 21:20? Spurning með Höllina?  Eitthvað heyrði ég reyndar af því að hugsanlega fengjum við Aðalvöllinn? ...sel það ekki dýrarar en ég keypti það?!  Frekari fréttir hér, þegar/ef þær koma!!
Látið vita hér á blogginu, eigi síðar en þriðjudaginn 1. sept. kl. 20.00,  hvort þið komist eður ei.


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 4
Niðurtalning
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 7 dögum
Keflavík - ÍR
Klukkan
Dagsetning
6. september 2010
Dagatal
september - 2010
S M Þ M F F L
1234
567891011
12131415161718
19202122232425
2627282930
FyrriNæsti
Heimsóknir
Í dag:  4  Alls: 16737